Áminning um skil á einkunnum til nemenda

Nokkuð hefur borið á því að nemendur hringja í Hólaksóla eftir að hafa fengið prófskírteini afhent og spyrja hvaða einkunnir þeir hafi fengið á prófum. Rétt er að ítreka að það er í verkahring reiðkennara og leiðbeinenda að skila einkunnum og prófniðurstöðum til nemenda sinna enda mjög mikilvægt að fylgja eftir námsmati til að nemendur viti hvar þeir voru að standa sig vel og hvað þeir þurfa að bæta. Best er að hitta nemendur að prófum loknum og fara yfir helstu atriði með þeim og ræða um prófið, hvernig það gekk og gefa nemendum tækifæri til að fá upplýsingar um eigin frammistöðu.

Frétt skráð: 11.11.2009