Nú hefur verið bætt inn bóklegum prófum inn á kennarasvæðið. Þessi próf geta kennarar notað til að setja saman bókleg próf fyrir nemendur eða til æfinga í bóklegum tímum. Kennurum er frjálst að nota þessi próf ásamt spurningalistum sem nemendur hafa aðgang að á heimasíðunni. Einnig er kennurum heimilt að bæta við prófum og hugmyndum frá eigin brjósti á þeim námskeiðum sem þeir kenna og er hvatt til þess að kennarar geri kröfur til nemenda sinna með því að leggja fyrir þá vönduð próf og verkefni þar sem það skilar betri árangri þegar upp er staðið. |