Í vor hafa allmargir reynt við að taka 5 stig Knapamerkjanna og er það mjög ánægjuleg þróun. Prófin eru öll dæmd af 2 prófdómurum 1 frá Hólaskóla og öðrum Knapamerkjadómara sem viðkomandi reiðkennari velur. Í vor hafa flest prófin verið dæmd af Helgu Thoroddsen og Oddrúnu Ýr Sigurðardóttur og hafa prófin spannað allan skalann allt frá 9 og niður fyrir 5 sem er lágmarkseinkunn til að ná prófi. Á þessu ári verður í fyrsta skipti veitt viðurkenning á vegum Hólaskóla fyrir hæstu einkunn á 5 stigi og því eftir nokkru að slægjast að standa sig vel. Þegar þessi orð eru skrifuð er eftir að dæma nokkur próf en eftir það verður hægt að sjá heildarmyndina yfir árangur ársins og verður upplýsingum komið á framfæri hér á síðunni þegar þar að kemur. |