Verðlaun fyrir hæstu einkunn í Knapamerki 5 árið 2011

Á nýafstöðnu Ísladsmóti barna og ungmenna sem haldið var á keppnissvæði hestamannafélagsins Mána í Keflavík fengu 2 ungar hestakonur viðurkenningar fyrir besta frammistöðu á 5. Stigi Knapamerkjanna árið 2011.

 

Þetta er í fyrsta sinn sem sem slík viðurkenning er veitt og vildi svo skemmtilega til að tveir nemendur voru hnífjafnir og því ákveðið að veita báðum viðurkenningu í þetta sinn. Nemendurnir sem hlutu viðurkenningu að þessu sinni eru þær Brynja Kristinsdóttir frá hestamannafélaginu Sörla og Ellen Maria Gunnarsdóttir frá hestamannafélaginu Andvara. Þessar tvær stúlkur stóðu sig frábærlega í bæði bóklegum og verklegum prófum þar sem þær sýndu glæsilega og prúðmannlega reiðmennsku, Brynja undir styrkri stjórn Friðdóru Friðriksdóttur og Ellen hjá Þórdísi Önnu Gylfadóttur. Báðar eru þær með um 9 í einkunn sem er frábær árangur.

 

Á síðustu árum hafa sífellt fleiri stundað nám í Knapamerkjum og stöðugt fjölgar í þeim hópi sem nær að ljúka prófum á efri stigum Knapamerkjanna en þar eru gerðar miklar kröfur um ástundun og færni í reiðmennsku.

 

Margir reiðtímar, metnaður, góð kennsla og eljusemi liggja að baki þeim árangri að útskrifast af 5 stigi Knapamerkjanna og því einstaklega gleðilegt að æ fleiri spreyta sig á efri stigum Knapamerkjanna þar sem það skilar sífellt fleiri góðum reiðmönnum og knöpum í samfélag hestamanna á Íslandi.

 

Á þessu ári hafa 30 nemendur þreytt próf á 5 stigi og eru þeir á aldrinum 17 ára til fimmtugs, þannig að ljóst er að fólk á öllum aldri sækir í Knapamerkjanámið og er það vel. Þau Knapamerkjanámskeið sem haldin hafa verið eru flest á vegum hestamannafélaganna en einnig bjóða nokkrir fjölbrautaskólar upp á einingabært nám sem tekur m.a. mið af Knapamerkjunum.

 

Dugmiklir nemendur, fræðslufulltrúar hestamannafélaga og metnaðarfullir reiðkennarar eiga hrós skilið fyrir mikið og gott starf þar sem Knapamerkin hafa í sífellt auknum mæli lagt sitt lóð á vogaskálarnar sem drifkraftur framfara í reiðmennsku og þjálfun hér á landi.

 

Próf á 5 stigi er dæmt af tveimur sérstaklega þjálfuðum prófdómurum, þar af einum frá Háskólanum frá Hólum til að tryggja gæðakröfur á þessu efsta stigi Knapamerkjanna sem er í raun staðlað lokapróf úr Knapamerkjanáminu og taka nemendur bæði yfirgripsmikil bókleg og verklegt próf.

 

Góðir kennarar eru lykilinn að góðum árangri nemenda og því við hæfi að hrósa þeim Friðdóru og Þórdísi fyrir að hafa skilað þessum ungu stúlkum svo langt sem raun ber vitni með góðri reiðkennslu og metnaði fyrir hönd nemenda sinna.

 

Frétt skráð: 31.8.2011