Uppfærsla og breytingar á 5. stigi 2012

Á næsta ári munu eftirfarandi breytingar taka gildi í verklega prófinu á 5. stigi Knapamerkjanna. Ekki er um stórvægilegar breytingar að ræða heldur atriði sem hafa verið fínpússuð í ljósi þess að á þessu ári hafa verið dæmd rúmlega 30 5. stigs próf og því komin nokkur reynsla á prófið og hvað má betur fara.

Nýtt próf verður sett inn á forsíðuna á næstu dögum.


Eftirfarandi atriði breytast:


Atriði 6 og 7: Sniðgangur


Undirbúningur fyrir æfinguna sniðgang – Leyfilegt að ríða 6 – 8 m baug áður en æfingin er riðin – til að hjálpa hestinum að sveigja sig áður en sniðgangurinn er riðinn meðfram langhliðinni.


Atriði 13 og 17: Stökk


Undirbúningur fyrir stökkskiptingar - Það má ríða 6 – 8 m baug við A og C ef þarf til að undirbúa stökkskiptinguna


Atriði 11: Stöðvun

(Var áður stöðvun og bakka, dæmt sem eitt atriði)

Skipt upp í tvö atriði 11 og 12 – “stöðvun” sem er dæmd sér og “að bakka” sem er dæmt sér.


Atriði 18: “Taumur gefinn”


Ekki er hægt að fá hærra en 8 ef æfingin er riðin á feti. Í æfingunni á hesturinn að vera í léttu taumsambandi og lengja sig fram og niður með virkni á milli fram og afturhluta. Þ.e. knapinn á að ríða hestinum fram að taumnum og viðhalda taumsambandi.

Frétt skráð: 31.8.2011