Nokkrar breytingar sem taka gildi 2012

Eftir því sem meiri reynsla kemur á próf og annað sem viðkemur Knapamerkjunum þá slípast til reglur og annað sem þeim viðkemur. Yfirleitt eru þessar breytingar gerðar í ljósi reynslunnar og vegna tilmæla frá reiðkennurum. Hér fyrir neðan eru tilgreind nokkur atriði sem rétt er að leiðbeinendur og kennarar kynni sér fyrir námskeið sem halda á árið 2012.

  • Nemendur á 4. og 5. stigi verða að kunna verkefnið utanað.
  • Má og mælt með að nota tónlist í prófinu.
  • Öll próf skulu riðin á venjulegum hringamélum.
  • Ef nemandi ruglast á reiðleið þá dregst hann niður um 1 heilan fyrir allt prófið.
  • Af gefnu tilefni hefur verður gerð sú breyting árið 2012 að nemendur undir 14 ára geta ekki tekið stöðupróf á stigum 1 og 2.

Frétt skráð: 1.9.2011