Hestar/aðstaða

Aðstaða sem þarf að vera til staðar til að kenna Knapamerkin er að lágmarki öruggt gerði 20X40 eða inniaðstaða með góðu undirlagi. Nauðsynlegt er að hægt sé að kenna bæði innan og utandyra en mestu skipir að umhverfið sé laust við slysagildrur og öruggt til kennslu og hestahalds. Jafnframt þarf aðstaðan að vera þess eðlis að hægt sé að vinna að og ná þeim markmiðum sem lögð eru til grundvallar á hverju stigi fyrir sig.

Hestar sem henta á Knapamerkjanámskeið þurfa að vera með hreinar og öruggar gangtegundir, (skeið ekki nauðsynlegt). Þeir eiga að vera vel tamdir, þjálir og spennulausir. Æskilegt er að kennari prófi sjálfur hesta sem nemendur mæta með á námskeið og gangi úr skugga um að þeir henti í þau verkefni sem framundan eru áður en námskeiðið hefst. Af gefnu tilefni skal tekið fram að það er mjög mikilvægt að nemandinn geri sér sjálfur grein fyrir því strax frá upphafi hvernig hesturinn þarf að vera til þess að hann geti náð tilskyldum árangri. Varað er við því að leggja upp í námskeið með hest sem grunur leikur á að henti ekki einhverra hluta vegna. Jafnframt að reiðkennarar haldi því til streitu að leiðbeina nemendum heiðarlega og af ráðvendni varðandi val á hesti. Öryggi nemenda á að vera í fyrirrúmi!