Kostnaður/tímafjöldi
Kostnaður vegna getur verið mismuandi eftir námskeiðum en sá kostnaður sem gera má ráð fyrir er:
- Aðstaða, t.d. leiga á reiðhöll
- Kennsla, laun reiðkennara eða leiðbeinanda
- Kennslugögn – prófskírteini, umsýslukostnaður
- Bækur Kr. 3.500-
- Prófskírteini, skráningar og umsýsla, Kr: 1200-
- Prófdæming, kostnaður vegna prófdómara
Tímafjöldi og lengd námskeiða er mismunandi eftir því hvaða stig á í hlut.
Eftirfarandi eru tillögur að lágmarkstímafjölda fyrir hvert stig
- 1. stig: 8-10 tímar bóklegt og 18-20 tímar verklegt
- 2. stig: 8-10 tímar bóklegt og 28-30 tímar verklegt
- 3. stig: 16-20 tímar bóklegt og 35-40 tímar verklegt
- 4. stig: 18-22 tímar bóklegt og 40-42 tímar verklegt
- 5. stig: 18-22 tímar bóklegt og 40-42 tímar verklegt
Ath. að einungis er um tillögur að tímafjölda að ræða til hagræðingar þegar námskeið eru skipulögð og til að skólar geti reiknað út einingafjölda fyrir hvert stig. Námskeiðshöldurum og/eða kennurum er í sjálfsvald sett á hversu langt tímabil tímarnir raðast yfir. Takist ekki að klára tiltekin námskeið á ákveðnu tímabili þá er hægt að láta nemendur taka stöðupróf og halda áfram síðar til að ljúka áfnganum.
Nemendur sem hafa lokið bóklegu og verklegu prófi á 5. stigi hafa mjög góðan og sterkan grunn til að mæta þeim hæfniviðmiðum sem Háskólinn á Hólum viðurkennir og byggir á varðandi inntöku til náms við skólann.