Gátlisti til umhugsunar fyrir umsjónaraðila námskeiða
Námskeið eða námsbraut auglýst og/eða kynnt. Hægt er að auglýsa og kynna námskeið á heimasíðu Knapamerkjanna ef óskað er.
Mikilvægt er að þeir sem hyggjast bjóða upp á námskeið kynni nemendum vel hvað er framundan og veiti þeim góðar upplýsingar
Hægt er að kynna/auglýsa námskeið beint á heimasíðu og þar með um leið í gagnabanka Knapamerkjanna og láta nemendur skrá sig þar.
Mikilvægt er að grunnupplýsingar séu rétt skráðar í gagnabanka, s.s. fullt nafn, kennitala, netfang, sími og heimilisfang.
Mikilvægt er að prófdómarar og kennarar votti að þeir hafi kennt og dæmt einstök námskeið. Dómarar sjá um skráningu á verklegum prófum í gagnabanka eða senda gögn í Hóla til skráningar.
Að vottuðu námskeiði loknu sér skrifstofa Hólaskóla um að prenta út prófskírteini og senda til hlutaðeigandi.
Það er afar mikilvægt að kennarar sjái til þess að nemendur fái í hendur staðfestingu/prófskírteini að námskeiðum loknum.
Hægt er að láta Hólaskóla senda skírteini beint til nemenda sé þess óskað.
Ef upplýsinga eða handleiðslu er óskað þá er um að gera að hafa sambandi við Helgu í síma: 863-4717,
helga@thingeyrar.is
eða Sillu í síma: 455-6340,
silla@holar.is