Umsjón/kennsla.

Ábyrgð, -umsýsla, ritun kennslugagna, uppfærsla og vistun Knapamerkjanna er hjá Háskólanum á Hólum. Jafnframt sér skólinn um, vefsetur Knapamerkjanna, endurmenntun kennara og dómara. Grunnskólar, framhaldsskólar, sjálfstætt starfandi leiðbeinendur (útskrifaðir frá Hólaskóla), reiðkennarar svo og almenn félagasamtök t.d. hestamannafélög geta boðið upp á Knapamerkjanámskeið. Kennarar og leiðbeinendur á námskeiðum þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði til að námskeið sé viðurkennt af Hólaskóla. Nemendur þurfa að vera 12 ára (miðað við fæðingarár) eða eldri. Námsefnið er skrifað með það fyrir augum að það getur hentað mjög breiðum aldurshópi allt eftir því hver efnistök kennara eru við að miðla því. Námsefnið geta allir keypt og nýtt sér óháð próftöku.

Til að námskeið teljist fullgilt til skráningar í gagnabanka Knapamerkjanna og þar með afhendingar prófkírteina þá þurfa kennarar að uppfylla eftirfarandi skilyrði.