Kennsla/námsefni

Til þess að Knapamerkjanámskeið sé talið fullgilt þurfa nemendur að nota sérstök kennsluhefti sem fylgja hverju stigi fyrir sig. Kennslugögnin eru búin til með það í huga að stigin fylgi rökréttu og stigskiptu ferli í reiðmennsku, þjálfun og almennu hestahaldi.

Kennarar þurfa að kenna bóklega þá þætti sem fjallað er um í kennsluheftum svo og þjálfa verklega færni nemenda á hverju stigi fyrir sig og undirbúa þá fyrir bókleg og verkleg próf. Kennaranum er í sjálfvald sett hvaða efnistök og aðferðafræði hann notar við miðlun og framsetningu á námsefninu og býður námið upp á sveigjanleika að þessu leyti. Mikilvægt er að kennarar fari vandlega yfir námsefnið og gangi á eftir því að nemendur tileinki sér þá efnisþætti sem þar koma fram. Hægt er að nota námsefnið sem hluta af öðru námi eða eitt sér. Lögð er fram tillaga að lágmarks tímafjölda á hverju stigi fyrir sig en kennarar geta fjölgað tímum ef þess er óskað. Námsefni Knapamerkjanna er varið með höfundarrétti og því ólöglegt að afrita það með einum eða öðrum hætti nema með sérstöku leyfi.