Kostnaður/tímafjöldi

Kostnaður vegna getur verið mismuandi eftir námskeiðum en sá kostnaður sem gera má ráð fyrir er:

  • Aðstaða, t.d. leiga á reiðhöll
  • Kennsla, laun reiðkennara eða leiðbeinanda
  • Kennslugögn – prófskírteini, umsýslukostnaður
    • Bækur Kr. 3.200-
    • Prófskírteini og umsýsla, Kr: 1000-
  • Prófdæming, kostnaður vegna prófdómara

Tímafjöldi og lengd námskeiða er mismunandi eftir því hvaða stig á í hlut.

Eftirfarandi upptalning sýnir lágmarkstímafjölda fyrir hvert stig:

  • 1. stig: 8-10 tímar bóklegt og 18-20 tímar verklegt
  • 2. stig: 8-10 tímar bóklegt og 28-30 tímar verklegt
  • 3. stig: 16-20 tímar bóklegt og 35-40 tímar verklegt
  • 4. stig: 18-22 tímar bóklegt og 40-42 tímar verklegt
  • 5. stig: 18-22 tímar bóklegt og 40-42 tímar verklegt

Námskeiðshaldarar og/eða kennurum er í sjálfsvald sett á hversu langt tímabil tímarnir raðast yfir og geta að sjálfsögðu fjölgað tímum en ekki fækkað til að námskeiðið standist kröfur. Takist ekki að klára tiltekin námskeið á ákveðnu tímabili þá er hægt að láta nemendur taka stöðupróf og halda áfram síðar til að ljúka áfnganum. Sjá nánari umfjöllun um próf og námsmat.


Knapamerki - Hólaskóli, Háskólinn á Hólum - Hólum í Hjaltadal - s: 455-6300