Námskeið/gátlisti

  • Námskeið eða námsbraut auglýst og/eða kynnt. Hægt er að auglýsa og kynna námskeið á heimasíðu Knapamerkjanna.
  • Mikilvægt er að þeir sem hyggjast bjóða upp á námskeið kynni nemendum vel hvað er framundan og veiti þeim góðar upplýsingar
  • Skráð beint er á námskeið í gagnabanka Knapamerkjanna.
  • Mikilvægt er að grunnupplýsingar séu rétt skráðar í gagnabanka, s.s. fullt nafn, kennitala, netfang, sími og heimilisfang.
  • Mikilvægt er að prófdómarar votti að þeir hafi dæmt einstök námskeið. Dómarar sjá um skráningu á verklegum prófum í gagnabanka.
  • Að námskeiði loknu með vottun sér skrifstofa Hólaskóla um að prenta út prófskírteini og senda til hlutaðeigandi.
  • Að loknum námskeiðum er hægt að senda fréttir og myndir (1 mynd) af námskeiðum til birtingar á heimasíðu Knapamerkjanna.

Knapamerki - Hólaskóli, Háskólinn á Hólum - Hólum í Hjaltadal - s: 455-6300