Stig 5.
Á þessu stigi á nemandinn að hafa þekkingu á eftirfarandi þáttum
- Þekkja grunn í sögu reiðmennsku og þróun fram á daginn í dag
- Kunna skil á helstu þáttum þjálfunarlífeðlisfræði og þjálfunar hesta
- Skilja hvað liggur til grundvallar æfingunum opnum sniðgangi og að láta hestinn ganga aftur á bak
- Þekkja mjög vel gangtegundir íslenska hestsins og hvað liggur til grundvallar þjálfunar þeirra
- Þekkja og skilja virkni íslenskra stangaméla
- Þekkja helstu stofnanir og félagskerfi íslenskrar hestamennsku
Verklega á knapinn að hafa þekkingu á eftirfarandi þáttum
- Hafa mjög gott vald á öllum ásetum og kunna að beita þeim rétt við þjálfun hestsins
- Geta notað sér reiðvöllinn og fjölbreyttar reiðleiðir markvisst við þjálfun hestsins
- Hafa vald á gangtegundaþjálfun og geta riðið allar gangtegundir nema skeið
- Hafa gott vald á hraðastjórnun og gangskiptingum
- Geta látið hestinn stækka og minnka rammann, á feti og brokki
- Hafa vald á æfingunum opnum sniðgangi (á feti) og að láta hestinn ganga aftur á bak
- Geta framkvæmt réttar gangskiptingar í jafnvægi
- Knapi og hestur í andlegu og líkamlegu jafnvægi